Þessi ilmur hefur verið á markaðnum frá því árið 2009 og nýtur hann sígildra vinsælda enda algjör klassík: dularfullur, tælandi og fágaður.
Hugmyndin, eða ímyndin á bakvið ilminn er sú að nóttin sé eins og hugarástand: Daður í skugganum, djörfung og tæling.
Nóttin er þín. Þeir sem bera hann eru því afar nautnafullir og orkumiklir, djarfir og þokkafullir. Hver slær hendinni á móti slíkum karli?
Ilmurinn er ferskur og góður með kardemommum og lofnarblómi, þessi efni hrista upp í skilningarvitunum.
Flaskan er mjög töff og nútímaleg og sameinar sívaling og sexhyrning, tappinn svartlakkaður sem gerir útlit flöskunnar að innihaldi hennar (bjartir og dökkir tónar mætast inn í henni sem og utan).
Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessum ilmi og segja að ein lykt sé allsráðandi í honum, það eruu margar lyktir sem sameinast í honum og skilningarvitin fara á fulla ferð en það er einmitt það sem gerir hann svo góðan.
Flottur og töffaralegur ilmur sem ég mæli hiklaust með fyrir sæta karla.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig