David Beckham lætur ekki deigan síga í útgáfu sinni á herrailmum og nýjasti ilmurinn úr smiðju kappans heitir David Beckham – The Essence.
Þetta hafði David sjálfur að segja um ilminn:
“Allir menn eiga eitthvað sem gerir þá hamingjusama og fyrir mér er það lyktin af The Essence sem gerir það, hún vekur upp ævintýraþrá í mér og minnir mig jafnframt á góðar fjölskyldustundir og stundir sem maður man og á með sínum nánustu.”
Markmið David var að gera ilm sem væri ferskur og villtur, gæfi orku með lyktum frá náttúrunni sem aðalatriði.
Ilmurinn er samblanda af sítrus, ferskum ávaxta keim, ýmsum jurtum og er jafnframt klassískur með djúpum viðarkeim.
Ilmurinn er afar flottur og kemur í töff flösku, hann hentar hverjum sem er sem er fullur af ævintýraþrá eða vill bara kúra með fjölskyldunni- Það eru engin takmörk fyrir því hver getur notað ilminn.
Tilvalin ilmur í jólapakkann, ferskur og léttur frá náttúrunni.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=qTaWYViOIl4[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig