Ég hef verið lengi að leita að hinum fullkomna ilm fyrir manninn minn og loksins hef ég fundið hann, hvar annar staðar en hjá L’Occitane!
Þetta eru einfaldlega snillingar í að hanna ilmi sem eru fágaðir og halda fast í sína staðla um gæði.
L’occitane hefur gefið út nýjan ilm fyrir herra, Cedrat Eau de Toilette. Mér finnst hann fullkominn fyrir herra sem vilja ekki of þunga og kryddaða ilmi, sama hver aldurinn er.
Ilmurinn er ferskur sítrus með djúpum viðarnótum, virkar upplífgandi og mjúkur. Hann opnast með sítrus ilmi og bergamot. Kryddaðar nótur af múskati og engiferi einkenna hjartað sem gefa ilminum hlýju og viðurinn í grunninum gerir hann karlmannlegan og fágaðann.
Græni liturinn er mjög lýsandi fyrir ilminn, glasið er svo einfalt og fallegt.
Til þess að auka áhrif ilmarins/ilmsins og auka ánægjuna enn frekar er sturtusápa til í sama ilm sem hægt er að nota líka í ræktina. Sápan hreinsar húðina vel og gerir hárið glansandi hreint.
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com