Setningarathöfn Ólympíuleikanna fór fram í fyrradag með pompi og prakt og tískuheimurinn lætur ekki sitt eftir liggja: Giorgio Armani hannaði fatnað ítösku keppendanna, en lét það ekki duga og bjó til herrailm í anda leikanna í leiðinni.
ARMANI SPORT CODE ATHLETE er hannaður með anda Ólympíuleikanna í huga. Líkamlegt atgervi, kraftur og styrkur voru hönnuðinum efsti í huga við samsetningu ilmsins en lyktin er afar karlmannleg en jafnramt fersk og hressandi.
Hún er samsett meðal annars af þrennskonar myntu en einnig er að finna sítrónu, mandarínu og engifer.
Ferskur ilmur sem er tilvalið að splæsa í og gefa íþróttastrákum á meðan á leikunum stendur, kemur í fallegri 75 ml flösku með silfurtappa.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig