Þessar heppnu stelpur voru meðal þriggja sem fengu gjafir frá okkur rófunum og Karli Berndsen í síðustu viku.
Guðdís fékk andlitsbað en af því hún býr á Akranesi sendi hún okkur mynd af sér. Guðdís var meiriháttar hress með að fá andlitsbaðið af því hún er búin að vinna í verksmiðju í allt sumar og slíkt hefur ekki sérlega góð áhrif á húðina.
Í næsta pjattrófugjafaleik fá nokkrar heppnar stelpur helling af sokkum og sokkabuxum frá Filodoro en það eina sem þú þarft að gera er að senda okkur tillögu að slagorði á pjattrofugjafir@eyjan.is og svo drögum við úr þeim potti annaðhvort á morgun eða hinn.
Smelltu hér ef þetta hefur farið framhjá þér. Við hvetjum alla til að prófa að senda inn hugmynd. Það sakar ekki að láta aðeins reyna á sköpunarkraftinn 😉
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.