Það er ekkert sem segir að það sé sjálfsagt og auðvelt mál að kaupa sér rétta brjóstahaldarann.
Í raun getur þetta verið mikið og vandasamt verk því allar erum við svo misjafnar að stærð og lögun og svo eru númer misstór eftir því í hvaða landi fatnaðurinn er framleiddur.
Þannig eru ítalskar vörur oft í mikið stærri númerum en breskar og svo mætti lengi telja.
En örvæntu ekki þó þú sért ekki með þessi vísindi á hreinu því hjálpin er á næsta leiti!
Nú um helgina eru sérstakir undirfatadagar í Debenhams og 20% afsláttur veittur af öllum undirfötum fyrir dömur, herra og börn.
Debenhams er með stærstu undirfatadeild landsins og þar má finna gríðarlega gott úrval af t.d. aðhaldsfatnaði, sundfatnaði og fallegum undirfötum.
Vöruvalið er mjög gott en Debenhams bíður upp á vörur frá t.a.m. Femilet, Gorgeous, Janet Reger, Jasper Conran, Marathon, Presence, Shock Absorber, Sloggi, Spirit, Triumph og Ultimate svo eitthvað sé nefnt.
Brjóstahaldarar fást í stærðum frá 32AA upp í 40G og jafnframt er flott úrval fyrir unglinga. Fullkomin brúðkaupslína frá Janet Reger auk mikils úrvals af gjafahöldurum og meðgönguhöldurum.
Þjónustan er frábær og hægt er að fá ókeypis brjóstamælingu. Starfsfólk mun aðstoða við að finna réttar vörur fyrir þig.
Skelltu þér í Debenhams og kræktu þér í falleg sundföt fyrir sumarið, rétta brjóstahaldarann undir sumarkjólinn og já síðast en ekki síst, – ofurgóðan aðhaldsfatnað!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.