Twilight leikarinn Taylor Lautner er tvítugur að aldri og hefur heldur betur skotist upp á stjörnuhimininn með leik sínum í myndunum.
Hann er án efa þekktastur fyrir það að leika Jacob í Twilight seríunni en áður en hann sló í gegn í þeim kvikmyndum lék hann nokkur minni hlutverk ásamt því að talsetja teiknimyndir.
Í viðtali sem var tekið við hann í tilefni síðustu Twilight myndar sagðist hann vera afar feginn að tökum sé lokið vegna þess að það er full vinna að halda sér í svona svakalega góðu formi. Hann er nánast alltaf ber að ofan en það tók hann dágóðan tíma að “buffa” sig upp og það er alls ekki minni vinna að viðhalda þessum fagra skrokk.
Hann stundar alls kyns bardagaíþróttir og var á sínum tíma afar efnilegur í bardagaíþróttum en leiklistin sigraði og hann sér örugglega ekki eftir því.
Taylor er eins og áður sagði aðeins tvítugur að aldri en er á góðri leið að verða einn sá flottasti í glysborginni.
Aðdáendasíður Taylors eru óteljandi og dreymir margar ungar dömur um að verða kærasta kappans enda afar vel skapaður og í góðum efnum blessaður.
Hér er dágott myndasafn… Njóttu!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig