Helena christensen situr fyrir í myndaþætti sem nefnist heima með helenu fyrir hið ítalska fatamerki Caratere.
…þar klæðist hún vor og sumarlínunni fyrir merkið.
Helena er svöl, slök og óendanlega falleg á myndunum, svo slök er hún að ég er farin að hallast á að myndirnar séu í raun teknar heima hjá ofurfyrirsætunni.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.