Blistex Lip Vibrance er ný vara frá Blistex en þetta er einstakur “allt í öllu” varasalvi sem gerir varirnar þínar fallegar og frísklegar.
Formúlan byggir á því að veita vörunum raka og um leið lýsandi áferð en bragðið af honum er æðislega ljúft og þú færð náttúrulegar, fallega rauðar varir með góðum glans en samt ekki of áberandi. Frábært fyrir þær sem kjósa að mála sig ekki mikið yfir daginn og vilja hafa varirnar mjúkar og fallegar.
Lip Vibrance frá Blistex inniheldur
• Lit og glans fyrir flott útlit.
• Silki kjarna og shea smjör fyrir mjúka áferð.
• Vínberja olíu, E vitamin og efni sem mýkja varirnar.
• SPF 15 til að vernda varirnar gegn skaðlegum geislum sólar.
PLÚS! SPEGILL í lokinu!
Og af því okkur finnst svo gaman að gefa þá langar okkur að gefa 10 konum sem heita Anna og læka og deila þessari færslu… eitt stk Blistex Lip Vibrance. Gleðilegan mánudag!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.