Rapparinn, tónlistamaðurinn, framleiðandinn og fatahönnuðurinn Pharrell Williams býr í Miami í svo sannarlega stórglæsilegu húsi…
…Það þekkja hann örugglega margir sem aðalmeðlim hljómsveitarinnar N.E.R.D. sem hefur verið mjög farsæl undanfarin ár og er greinilega að skila inn nokkrum peningum til hans.
Það sést á þessum myndum að Pharrell hefur mjög gaman af hönnun, myndlist og fallegum hlutum en heimili hans er þakið skúlptúrum og málverkum. Húsið er mjög flott og útsýnið ekki verra, það væri sko gaman að fara í eitt stykki partí hjá honum!
Það er best að láta myndirnar tala sínu máli, hrikalega flottar!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.