Skartgripahönnuðurinn Pamela Love býr í mjög skemmtilegri og kósí íbúð með kærasta sínum Jordan Sullivan, ljósmyndara og tónlistamanni…
…Íbúðin er í Brooklyn og þar búa þau saman ásamt kisunum sínum og hellings af skemmtilegu og sérstöku dóti. Ég get ímyndað mér að þau séu með einhverja söfnunaráráttu enda eiga þau mjög mikið af bæði litlum og stórum fallegum hlutum sem þau raða og negla upp um alla veggi á heimilinu. Þeim tekst samt að halda öllu smekklegu og snyrtilegu.
Það er mjög kósí stemmning hjá þeim skötuhjúum, pínu indjána-hippa fýlingur.
Smellið á myndirnar til að skoða steinasafnið, fjölskylduljósmyndirnar og skartgripina hennar Pamelu svo eitthvað sé nefnt.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.