Emma Persson Lagerberg er sænskur innanhúss stílisti sem græjar m.a. myndatökur fyrir tímarit á borð við Elle Decor, Elle Interior og fleiri þekkta aðila.
Heimili stílistans er ákaflega smekklegt og í takt við það sem mörgum þykir heillandi nú til dags. Heimili Emmu er tært og smekklegt í fallegri ljósri pallettu með vel völdum húsgögnum og allt spilar þetta einstaklega vel saman. Hún er bæði með nýtt og notað á heimilinu en passar greinilega að hafa ekki of mikið af neinu, nema þar sem það á hreinlega að vera þannig.
Emma er stoltur eigandi dýrahorna en það er mjög heitt trend um þessar mundir og hún skreytir einnig heimili sitt með kortum, myndlist og ljósmyndum. Gólfin hjá henni eru svo alveg ‘to die for’ – Pjattrófurnar elska hvít gólf.
Smelltu á myndirnar til að stækka þær og njóttu …
HÉR er bloggsíða Emmu Persson
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.