Á vef Leiðbeiningastöðvar heimilanna kennir ýmissa grasa og þar er að finna ótal frábær ráð frá húsfreyjum landsins.
Meðal annars þennan flotta lista um hvernig megi ná flestum blettum úr fatnaði. Ekki allir vita að uppþvottalögur er hið mesta töfraefni og salt og sítróna duga jafnframt álíka vel og mörg dýr hreinsiefni sé rétt farið með þetta.
Ef um vökva er að ræða, er best að byrja að þurrka upp sem mest af honum með eldhúspappír eða klút.
Suma bletti þarf að byrja á að skafa ofan af áður en hafist er handa við eiginlega blettahreinsun.
Ef uppþvottalögur er notaður á bletti í fatnaði er þessi aðferð áhrifarík:
Uppþvottalögurinn (helst litlaus) er borin á blettinn, ef bletturinn er orðin þurr er betra að bleyta aðeins uppí honum. Flíkin sett í plastpoka, lokað vel fyrir og látið bíða í nokkra klukkutíma jafnvel 1/2 sólarhring. Þá er bleytt upp í blettinum með volgu vatni. Skolað vel og flíkn síðan vegin á venjubundin hátt.
Munið að ef vatn er notað til að ná úr blettum eða við lok blettahreinsunar, er best að hita/sjóða kalt vatn úr krananum í stað hitaveituvatns, sem vill skilja eftir rönd í kringum staðinn sem bletturinn var á.
24 góð ráð til að losna við bletti
1. Banana- og aðrir ávaxtablettir
Ef flíkin er hvít er hægt að nudda blettinn með sítrónusafa eða blanda sítrónusýru í vatn og nudda í láta bíða smástund og þvo svo á venjulegan máta.
Aðferðin hér að ofan með uppþvottaleginum gefur góða raun á ávaxtabletti.
2. Bjór
Skola blettinn vel úr volgu vatni. Einnig hefur matarsódi reynst ágætur, þá settur út í vatn, eins má nota sódavatn, einkum á húsgögn og gólfteppi.
3. Blek
Brennsluspritt nær flestum tegundum af bleki af fatnaði og húsgögnum.
4. Blóð
Best er að leggja flík með blóðblettum í bleyti í kalt vatn með salti (ca 1 dl gróft salt 3 l af vatni). Látið liggja í 15 mínútur. Bera síðan lífræna sápu á blettina, látið liggja góða stund og skolið. Þvoið síðan á venjulega hátt.
Blóðbletti í dýnum er best að ná með því að reisa dýnuna upp á rönd. Bleyta i blettinum með köldu vatni, gera þykkan graut úr matarsóda og vatni og bera á blettin. Látið þorna og burstið af eða ryksugið. Gæti þurft að endurtaka meðferðina. Kartöflumjöl hrært meðð köldu vatni getur reynst ágætlega, borið á blettin og látið þorna við hita t.d. í sól. Burstað af.
5. Fita
S.s. majónes, matarolía, smjör, lýsi og önnur matarfita. Hér duga best lífrænar sápur eða uppþvottalögur. Sjá aðferð hér að ofan. Lýsisbletti getur þurft að bleikja í lokin, t.d. með sítrónusafa.
6. Fíflamjólk
Hellið mjólk á blettinn og nudið góðum uppþvottalegi í hann. Látið liggja um stund og þvoið úr.
7. Grasgræna
Uppþvottalögur eða grænsápa eru góð á grasgrænu. Bera á og láta liggja góðan tíma. Skola vel og þvo á eftir. Sítrónusafi eða annað bleikiefni getur dugað vel á grasgrænu í hvítu efni.Gott gerur verið að hella mjólk á blettina og nudda síðan uppþvottalegi í Skola vel og þvo á venjulegan máta.
8. Harpis (trjákvoða):
Terpentína eða brennsluspritt virka best á harpis.
9. Karrí
Það inniheldur túrmerik sem er mjög litsterkt og getur verið erfitt að ná því úr. Best að nudda glýserínupplausn á blettinn og láta bíða um 1/2 klst. Skola þá vel og þvo. Ef bletturinn hverfur ekki er ráð að reyna vetnisperoxíðsupplausn (1 hl. á móti 6 af köldu vatni). Þvo síðan vel.
10.Kertavax
Byrja þarf á að ná sem mestu af vaxinu burt. Það er auðveldast með því að frysta eða kæla vaxblettinn og skafa sem mest af.
Ef um litlaust vax er að ræða getur verið gott að leggja eldhúspappír yfir og strauja með volgu staujárni yfir.
Ef vaxið er litað er betra að nota rauðspritt eða brennsluspritt til að ná blettinum úr eða jafnvel hreinsað bensín ef liturinn er sterkur.
Kertavaxleifar leysast upp við 60° hita og ef flíkin eða dúkurinn þolir þann hita er best að þvo hann strrax eftir blettahreinsunina.
11. Kísill
Nota má edik, sítrónu eða matarsóda í kringum blöndunartæki. Penslasápan frá Undra reynist vel á kísil.
12. Lím
ÞAð fer eftir styrkleika límsins hvað hentar best en hreinsað bensín eða nagalalakkseyðir virka á flest lím. Gætið þó að því efnið þoli þessa vökva.
13. Mygla
Ef myglublettur er í fatnaði er ráð að bera súrmjólk á hann, láta liggja góðan tíma, jafnvel nokkra klst, skola svo vel og þvo með sápu t.d. grænsápu (kristalssápu).
14. Rauðvín
Byrja á að þurrka mesta vökvann upp. Strá salti eða matarsóda yfir blettin og láta þorna. Skola og þvo á venjulegan hátt. Aðferðin með uppþottalög og plastpoka virkar vel á rauðvínsbletti.
Hella má hvítvíni strax yfir rauðvínsblett eða nota sódavatn og þurrka upp með svampi. Þvo síðan.
Eitt ráð er líka að bera glýserínupplausn (blandað til helminga á móti vatni), láta liggja á um stund og skola vel með volgu vatni. Ef enn hattar fyrir bletti er uppþvottalögur ágætur til að honum af.
15. Ryð
Gegn ryðblettum í fatnaði eða öðrum vefjarefnum er best að nota ferskan sítrónusafa. Þá er lagður klútur eða annað efni sem dregur vel í sig vökva undir, safanum dreypt á blettinn og salt stráð yfir. Látið þorna í u.þ.b. klst, (gott í sól). Skolað að lokum og þvegið.
16. Skósverta
Hreinsað bensín er best til að ná skósvertu af ljósu efni eða leðri. Nota t.d. eyrnapinna við verkið en varast skal að ganga of nærri efninu sem verið er að hreinsa. Ef um ljósa skó er að ræða þarf að bera á þá og bursta vel á eftir.
17. Sót
Venujulegt sót er vatnsuppleysanlegt og nægir oftast að þvo flík sem sót fer í. Sé um fitublandað sót að ræða er uppþvottalögur gagnlegur. Ryksugun eða burstun er oft nóg til að losa um sótbletti.
18 Straujárn
Það fer eftir því hvaða efni er í hitaflöt straujárnins hvaða efni er best að nota. Járnið þarf að vera kalt. Tannkrem getur reynst vel á krómað stál, hreinsað bensín á keramik og volgt sápuvatn á teflonhúðuð straujárn. Brennsulsprittl virkar lika vel á teflonhúð.
19. Súkkulaði
Best er að láta súkkulaðið þorna og skafa með bitlausum hníf. Bleytið vel í blettinum og berið t.d. uppþvottalög eða lífræna sápu á hann og setjið flíkina í plastpoka og loka vel. Má bíða þannig í nokkra klukkutíma. Skolað vel úr og flíkin þvegin á venjulegan máta.
20. Tómatsósa
Láta kalt vatn renna á blettinn, nota mildan uppþvottalög og þvo síðan.
21. Tússlitir
Eins og með blek, brennsluspritt er best. Ef tússið er á vegg eða máluðum eða lökkuðum fleti, getur glerúði dugað til að ná því af.
22. Tyggjó
Ef mögulegt er er best að byrja á því að kæla/frysta tyggjóklessuna, annað hvort með klakamola eða setja flík í frysti. Skafa síðan af með hníf eins og hægt er. Nota síðan hreinsað bensín til að ná restinni af blettinum í burtu.
23. Varalitur
Best er að nota brennsluspritt eða hreinsað bensín. Bera svo sápu á blettinn og láta liggja ums tund. Skola vel úr.
24. Kaffi, kakó
Skola vel úr volgu vatni. Bera uppþvottalög eða grænsápu á blettin og láta liggja góða stund. Skola vel og þvo á eftir.
Undri blettahreinsir hefur reynst vel á gamla kaffibletti.
Meiri skemmtilegan og gagnlegan fróðleik má finna HÉR á heimasíðu Leiðbeiningarstöðvar.

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.