Þessi fallega íbúð er í Stokkhólmi, Svíþjóð…
Hún hefur birst í mörgum hönnunartímaritum um allan heim og ástæðan er sú að hún er einstaklega vel útfærð. Nútíminn mætir gamla tímanum. Einstök hönnunarhúsgögn á móti nýmóðins stíl. Íbúðin er á tveimur hæðum en svefnherbergið er á efri hæðinni.
Hérna sjáum við skandinavíska hönnun upp á sitt besta!
Ótrúlega falleg og þægileg íbúð sem hefur stóra og flotta glugga ásamt því að vera fallega innréttuð. Mátulega mikið af því gamla er blandað við hið nýja svo íbúðin hefur ekki þennan kreppulega stíl sem oft vill henta þegar antík er misnotkuð.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.