Veggfóður er alltaf jafn vinsælt, það svona kemur og fer tíska en er ótrúlega heitt um þessar mundir enda býður prentæknin upp á svo margt skemmtilegt og úrvalið mikið.
Það skapar vissulega skemmtilega stemningu að hafa einn til tvo veggi með skrautlegri áferð. Fyrirtækið Filthy home sérhæfir sig í töff veggfóðri og sendir hönnun sína út um allan heim – kannski finnur þú drauma veggfóðrið þitt hjá þeim? Eða drauma hornin því þau eru líka að selja allskonar litrík horn.
Flippað og flott hjá Filthy home sem er með aðsetur sitt í Brooklyn í New York.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.