Í fallegri byggingu í miðborg Barcelona er þessi falleg íbúð.
Hæðin er 170 fermetrar og hefur verið gerð upp í New York loft stíl. Íbúðin er leigð út eftir klukkutímanum og þá helst sem ljósmyndastúdíó. Þarna hafa öll virtustu tímarit heims tekið myndir fyrir þekktustu fatahönnuði í heimi eins og til dæmis Vivienne Westwood, Alexander McQueen og fleiri. Eins er vinsælt að taka myndir af húsgögnum og annari hönnun þarna.
Íbúðin var máluð hvít og eins bitarnir í loftinu, skemmtileg smáatriði eru víðs vegar um íbúðina og gefa henni skemmtilegan sjarma.
Enda íbúðin stórglæsileg, heimilisleg og skemmtilega uppsett.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.