Ein af mínum uppáhalds netverslunum!
Hjá Tine K Home er hægt að fá svo fallega hluti fyrir heimilið. Hægt er að fá allt frá kertum upp í húsgögn. Allt er frekar rómantískt og með smá gamaldagsblæ yfir sér. Stundum þarf nefnilega bara smá krydd inn í íbúðina til að fullkomna útlitið. Smá skraut sem er ekki of áberandi og þetta er algjörlega staðurinn til að finna réttu hlutina.
Þessar myndir sýna nýjustu línuna hjá þeim, en þau eru í þessum skrifuðu orðum á húsgagnasýningum um alla Evrópu að kynna nýju vorlínu sína. Lína er svo falleg, björt og rómantísk. Ég er búin að setjast á visa kortið svo ég spanderi ekki sumarfríspeningunum í þessa nýju vorlínu! Þvílík fegurð!
Endilega kíkið líka á heimasíðuna hjá þeim hérna…
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.