Þessi glæsilega íbúð er hönnuð af henni Susanna Cots sem er ein af mínum uppáhaldshönnuðum
Íbúðin er hönnuð fyrir hjón sem eru rithöfundar. Þau bæði lesa mikið og vinna einnig heima. Hjónin vildu létta og þægilega umgjörð með pláss fyrir allar bækurnar þeirra án þess þó að bækurnar væru yfirgnæfandi í íbúðinni. Þetta tókst ótrúlega vel hjá henni því léttleikinn er allsráðandi. Þægindaramminn er nýttur alla leið og eflaust ekki slæmt að liggja í einhverjum sófanum þarna og lesa góða spennusögu!
Falleg og skemmtileg hönnun!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.