Þessi sjarmerandi íbúð er heimili Anitu Kiralyfalvy sem vinnur hjá Tine K home netbúðinni fallegu.
Anita skrifar einnig greinar um innanhússhönnun fyrir Borsen og birtast þær hvern föstudag. Hún er afar vinsæl og hefur gott innsæi varðandi hönnun og útlit.
Þess vegna er frábært að fá að sjá inn til hennar líka, sjá hvernig hún býr og hvaða stíll lýsir henni best. Hún er öll í skandinavíska stílnum. Léttum,heimilislegum og fallegum. Mörg húsgögnin og fylgihlutirnir koma frá netbúðinni Tine K Home.
Enda er sú búð alveg svakalega falleg, húsgögnin og smá hlutirnirnir eru alveg to die for….svo fallegt!
Njótið myndanna!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.