Hin breska Rachel Ashwell stofnaði fyrirtækið Shabby Chic Couture fyrir nokkrum árum þegar hún var heima með tvö ung börn sín en Shabby Chic stíllinn er afar kvenlegur og rómantískur.
Rachel hannar, málar, saumar og selur vintage húsgögn í frönskum stíl, áklæði á húsgögn og fallegan rúmfatnað í verslunum sínum sem eru orðnar þrjár og eru staðsettar í Santa Monica, Californíu; Soho, í New York; og í London er ein verslun hennar í Notting Hill hverfinu.
Sjáðu þetta sæta og rómantíska heimili…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.