Baðker á fótum skapa einstaklega skemmtilega stemmningu inni á baðherbergjum og hafa svona ljóðræn áhrif á mann.
Baðherbergið verður umsvifalaust þægilegur og rómantískur staður. Einnig eru svo margir möguleikar í boði, það er bæði hægt að ná parísar stemningunni, shabby chic eða nútímalegum áhrifum með þessum svakalega fallegu baðkerum.
Væri ekki unaður að eiga nógu stórt baðherbergi fyrir eitt svona fallegt baðker á fótum þannig að það myndi njóta sín vel. Leyfa fylgihlutunum að njóta sín einnig, eins og háum kertastjökum, fallegum körfum fyrir handklæðin. Smekklegar myndir á veggi, stóran og flottan glugga. Svo ég tali nú ekki um pláss fyrir gott snyrtiborð.
Þvílíkur draumur!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.