Gömlu 50s ísskáparnir eru ein flottasta hönnun í heimilistækjum fyrr og síðar varðandi útlit
Nú er þeir aftur orðnir vinsælir og sóma sér ótrúlega vel í hvaða eldhúsi sem er. Þeir eru með risa karakter og hreinlega gefa eldhúsum nýtt líf þar sem þeir standa. Hægt er að fá þá í mörgum mismunandi standard litum og svo er alltaf hægt að sérpanta þá í sérstökum litum eða láta sprauta þá í þeim lit sem þú óskar þér.
Mæli með þessum ofur skemmtilegu ísskápum ef þig langar í töff breytingu. SMEG ísskáparnir fást til dæmis í Eirvík.
Njótið myndanna… hver máltíð hlýtur að verða betri ef hráefnið er hýst í slíku fíeríi:
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.