Hvað er yndislegra en að eiga góðan vin?
Kisur og hundar hafa öldum saman veitt manninum gleði og hamingju enda elska þau húsbónda sinn skilyrðislaust – að minnsta kosti hundarnir, kettirnir eiga það til að vera meiri tækifærissinnaðir. En þetta eru fallegar, mjúkar og ljúfar verur sem gaman er að hafa í kringum sig.
Ég rakst á þessa frábæru síðu sem selur hunda og kattarbæli í Retró stíl. Algjörlega endurnýtt dót sem svo er nýtt sem bæli fyrir fallegu dýrin okkar og þessi bæli eru ofur töff og falleg, ekki þessar mottur eða hundaloppur sem eru til sölu í svo alltof mörgum búðum.
Sjáið myndirnar…
…og farðu inn á þessa síðu til að sjá meira.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.