Ef þú ert með nægilegt rými og lofthæð á heimilinu þá væri nú ekki leiðinlegt að láta smíða eins og eina rennibraut sem tengir efri hæðina og neðri hæð.
Ég get rétt ýmindað mér hversu skemmtilegt það sé skella sér í eina bunu af niður á næstu hæð og stór plús að þurfa ekkert að vera að burðast þetta með þvottakörfuna niður tröppur, bara skellir þvottinum í rennibrautina! Ég er nokkuð viss um að heimilisfólkið þarf heldur ekkert að fara í ræktina til að fá smá hreyfingu í kroppinn, það er nóg að hlaupa upp stigann og taka nokkrar bunur í rennibrautinni.
Á efri hæð hússins eru svefnherbergi, neðri hæðin er með stofu, skrifstofur, eldhús og gróðursælar svalir. Þessi magnaða penthouse íbúð er staðsett í East Village, New York.
Ljósmyndirnar tók Travis Dubreauil.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.