Krítarhvítir veggir og lát litríka húsmunina standa upp úr á þessu skemmtilega finnska heimili.
Ég viðurkenni fúslega að ég missi stundum andann þegar ég sé skemmtilegar lausnir á heimilum fólks, hugmyndir og lausnir sem kosta ekki annan handlegginn og jafnvel meira til.
Á þessu finnska heimili er að finna fullt af skemmtilegum og ódýrum lausnum sem bera vott um útsjónarsemi og hyggjuvit húsráðenda.
Meira um heimili Susanne og Jussi Vento hér:
http://www.dwell.com/articles/Fine-Finnish.html
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.