Það nýjasta í dag í smiðjum götulistamanna er að mála þrívíddar myndir fyrir heimili.
Við höfum séð svona götulistaverk út um allan heim þar sem listamennirnir vinna sér inn peninga með því að mála á göturnar. Ótrúlegar myndir hjá þeim oft á tíðum en þetta er í fyrsta skipti sem þetta sést inn á heimilum. Hægt er að skoða götulistaverkin á heimasíðu 3D Super Mario Bros Chalk Art,
Óhætt er að segja að þessi stofugólf séu orðin að listaverki í þrívídd, frekar flippað og skemmtilegt!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.