Þetta heimili er alveg einstaklega fallegt, hönnunin létt og nútímaleg og flæðið mjög gott.
Þar að segja stíllinn nær að streyma áreynslulaust inn í hvert rými og skapar þannig fallega heild. Litirnir í íbúðinni eru mjög náttúrulegir og þægilegir. Léttir og ljósir. Parketið er gegnheilir eikarplankar og eru rúmin á heimilinu einnig smíðuð úr þessari fallegu eik.
Veggirnir eru flestir hvítir en inn í stofu er fallegur sérsmíðaður hilluveggur sem prýðir fallegt stofustáss. Eins nota þau hráa múrvegginn til að brjóta upp.
Ljúf og falleg íbúð með einstaklega fallegan stíl þar sem samspil náttúruefna fá að njóta sín
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.