Það er hluti af því að vera foreldri að búa barninu gott herbergi. Rétt búið barnaherbergi getur ýtt undir bestu eiginleika barnsins þíns og hjálpað því að þroskast og þá er einnig heppilegt að finna sniðuga lausn til að geyma leikföngin.
Allir strákar elska að leika sér með leikfangabíla en þeir geta líka legið um öll gólf eftir leik.
Það eru margar leiðir til að fá stráka til að ganga frá bílunum sínum og ef þeir eru geymdir á skemmtilegan hátt getur það gert tiltektina meira spennandi. Það eru oft auðveldu lausnirnar sem virka best.
Hér eru nokkrar snjallar hugmyndir til að hafa bílana í röð og reglu í strákaherberginu.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.