Ég hef aldrei verið sérstaklega hrifin af þessum venjulegu náttborðum.
Sérstaklega ekki þessum dæmigerðu amerísku náttborðum sem eru stór, þung og í kántrý stíl …þú veist hvað ég meina. Þess vegna ískraði örlítið í mér þegar ég sá þessa hugmynd. Þetta er bara fab! Brjálæðislega smart hugmynd!
Nú er bara að fara og þræða antíksölurnar og leita að gömlum flottum ferðatöskum!
Takið eftir speglinum ofan á töskunum, ótrúlega flott, þvílíkur karakter líka!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.