Sem hundaeigandi er ég alltaf mjög ánægð þegar ég sé nýjungar í hönnun fyrir dýr.
Gleðin var mikil þegar ég rakst á fyrirtækið Binq Design en þeir sérhæfa sig í vörum fyrir hunda og ketti. Ferlega flott húsgögn sem þeir kalla Bloq og eru bæli fyrir dýr. Það sem er svo sniðugt er að þau líta ekki út eins og hin hefðbundnu bæli og hægt er að nota þau sem náttborð, hliðarborð í stofu eða jafnvel inn á baðherbergi.
Hægt er að velja úr 13 fallegum litum fyrir púðana og 5 liti fyrir sjálft húsgagnið. Ég væri alveg til í svona sem náttborð og fallega púða í botninn fyrir litla krúttið mitt!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.