Eva og Gentry eru skemmtilegir fatahönnuðir sem búa í Brooklyn, New York.
Þau reka ótrúlega töff hönnunarbúð sem heitir einfaldlega Eva Gentry. Einnig bjóða þau upp á innanhússhönnun þar sem þeim er einkar lagið við að raða hlutum saman á einfaldan en jafnframt áhrifaríkan hátt. Þetta sést mjög vel á heimili þeirra sjálfra. Þar eru mótorhjól og hauskúpur í aðalhlutverki. Stórt og flott safn af mótorhjólahjálmum prýða stofuna, sem og eitt töffaralegasta mótorhjól sem ég hef séð. Málverkin á veggjunum hafa allar sama þemað en það er hauskúpur.
Töff – fönkí – smá drungalegur blær en samt ofur svalt heimili!
Kíkið einnig á síðuna þeirra hér
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.