Þetta ofurfallega hús er í Brasilíu en eigandinn er bandarískur leikari með verulega þykkt seðlaveski..
Húsið er nútímalegt og með öllum hugsanlegum lúxus sem til er. Stiginn upp á efri hæðina er bara gordjöss!! Maður hreinlega sér fyrir sér glæsilegt fólk koma niður stigann í sérhönnuðum fötum frá Hussein, Gucci, Fiorucci… brjáluð fegurð!
Þið sem eigið hús með stórum og miklum gluggum, takið einnig eftir gardínunum sem þau nota. Þetta eru léttar og ljósar gólfsíðar gardínur. Lokar algjörlega fyrir gluggana ef fólk vill en bíður einnig upp á þann möguleika að hafa dregið frá þannig að gluggarnir njóti sín sem best. Fínt að hafa gardínur í svona ljósum lit til að þær þyngi ekki heildarútlit stofunnar.
Veröndin er fyrir framan stofuna og hægt er að opna rennihurðina alveg frá þannig að stofa og verönd sameinist. Grillið er stórkostlegt..minnir helst á lúxuseldhús það er svo stórt og vígalegt. Hreinlega draumur hvers grillara. Eins eru diskóljós á veröndinni þannig að auðvelt er að breyta veröndinni í fallegan partýstað.
Þetta hús fær fullt hús stjarna!! Algjörlega fab!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.