Regine er norskur tísku og hönnunar bloggari sem skrifar skemmtilegar greinar um innanhússhönnun og tísku.
Hérna eru nokkrar myndir af heimilinu hennar en það er mjög nútímalegt og ramm skandinavískt. Falleg og létt hönnun með frábærum hugmyndum að flottum fylgihlutum. Hún notar mikið af gömlum við, til dæmis sem hillur og hirslur undir tímarit, fatnað, bækur og fleira. Sem rúmgafl notaði hún iðnaðarlímband og bjó til sinn eigin höfuðgafl fyrir rúmið… kemur vel út og mjög ódýrt lausn.
Fallegt og stílhreint heimili með skandinavískum blæ…
Kíktu líka á bloggið hennar hér
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.