Að þessu sinni kíkjum við í sumarhúsið hennar Malene Birger á Majorka, Spáni en Malene Birger er mjög þekktur danskur fatahönnuður.
Fötin hennar eru úr vandlega völdum efnum, mjög falleg og klassísk. Þannig að þá er nú ekki skrítið sumarhúsið hennar sem við erum að kíkja á sé fallegt og vel útpælt eins og Malene er einni lagið.
Þetta ofur fallega sumarhús er vandlega hannað í spænsk “slass” skandinavískum stíl. Úkoman er hreint út sagt æðisleg! Létt og ljós með helling af flottum uppstillingum. Litlar sætar körfur, kerti og myndir sem mynda flotta heild.
Ekki er húsið heldur af verri endanum, ekta spænskt í útliti með æðislegum garði. Þetta sumarhús er í lagi!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.