Hér fáum við að gægjast inn á heimili stílistans og búningahönnuðarins Patriciu Field!
Patricia er meðal annars þekkt fyrir að stílisera vinsælu þættina Sex and the City en þær þættir lýsa stíl Patriciu einstaklega vel. Þessi kona með eldrauða hárið er mjög skrautleg og skemmtileg og heimili hennar er það líka.
Maður gæti vel haldið að þetta væri heimili ungrar konu þegar maður skoðar myndirnar en Patricia er orðin 71 árs gömul, órúlegt en satt!
Smellið á myndirnar til að sjá brot af litríku New York íbúðinni hennar:
____________________________________________________________________________________________
Myndir fengnar að láni HÉÐAN.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.