Chelsea Fairless heitir eigandi þessarar frábæru íbúðar sem staðsett er í New York…
…Chealsea er bloggari og heldur úti vinsælu síðunni Cat Party. Þar skrifar hún um meðal annars tísku, tónlist og kvikmyndir.
Refinery 29 fékk að kíkja inn á heimili hennar þar sem hún hefur búið í þrjú ár.
Íbúðin er vægast sagt skemmtileg en bleiki liturinn er allsráðandi. Chealsea kann greinilega að meta að hafa fallegt í kringum sig en hún hefur sankað að sér sætum og ‘kitsch’ hlutum í gengum tíðina. Chealsea elskar til dæmis gömul tímarit og safnar þeim og hefur til sýnis um íbúðina. Útkoman er æði!
‘Takký’ á mjög góðan og ævintýralegan hátt!
_____________________________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.