Stemmningin í þessari íbúð er svo róandi. Grái liturinn er ríkjandi ásamt marmaranum, getur bara ekki klikkað.
Ég sé fyrir mér að þessar myndir séu teknar í sænskum sumarbústað, mig langar alveg að bóka helgarferð þangað til þess að slaka á.
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com