Jennifer Aniston hefur sett hús sitt á sölu, en húsið kallar hún “Ohana” – sem er tilvísun á Hawaiisku og er hægt að þýða sem “fjölskylda”. Húsið vill hún selja því hún segist vera að einfalda líf sitt!
Leikkonan keypti húsið á 13.5 milljónir dala 2006 og eyddi töluverðum aur í að breyta því í draumahús sitt. Svo flutti hún inn 2009 rétt fyrir ára afmæli sitt.
Húsið er byggt 1970 og er staðsett í hæðum Los Angeles, húsið fer í dag á litlar 42 milljónir dala -ætli talan hafi eitthvað að gera með að Jennifer er 42 ára?
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.