Þetta ooooofurstílhreina hús er í Queensland, Ástralíu…
…og það er algjörlega óhætt að segja að eigendur þessa húss séu með áráttu fyrir hvítum lit. Þau innréttuðu allt húsið með hvítum innréttingum og hvítum húsgögnum. Jafnvel hundurinn er hvítur! (sem er bara fyndið). Persónulega finnst mér húsið heldur kalt og lítið áberandi persónuleiki þarna inni, engar myndir á veggjunum jafnvel er eins og enginn búi þarna. Allt háglans og stíf bónað.
En þau sem eru mikið fyrir hvíta litinn ættu að njóta þessara mynda í botn…
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.