Þeir eru giftir og eiga tvo hunda og búa í þessari æðislegu íbúð í miðri Amsterdam, Hollandi.
Íbúðin er ákvaflega vel innréttuð af smekklegheitum og hlýleika. Samspil nútímans á móti hönnun og notagildi. Litavalið er svo fallegt og passar einstaklega vel saman, þeir blanda mikið hvítum, svörtum og brúnum litum saman. Nútímalegum hlutum og hráum hlutum.
Myndavalið á veggjunum er nánast eingöngu ljósmyndir af stöðum þar sem þeir hafa ferðast saman eða af þeim. Þeir velja að hafa myndirnar stórar og miklar enda koma þær ótrúlega flott út.
Skemmtileg og smart íbúð í hjarta Amsterdam
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.