Ég birti færslu í gær þar sem mátti sjá gamla hlöðu sem hafði verið breytt í fegursta sumarhús… en þetta toppar það.
Hér má sjá hesthús sem varð að hreint ævintýralega smekklegu heimili en það er galleríeigandinn Stuart Shave sem býr í þessu húsi sem er staðsett í Norfolk á Englandi.
Það var hinsvegar arkitektinn David Kohn sem gerði húsið upp en hann var m.a. valinn arkitekt ársins árið 2009 af tímaritinu Building design og fékk svo sérstaka viðurkenningu fyrir enduruppgerðina á þessu dýrðlega hesthúsi.
Þarna væri eflaust gott að búa… eða bara slaka á.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.