Hin hæfileikaríka og lífsglaða Cameron Diaz býr í glæsilegri og heimilislegri íbúð í West Village, Manhattan.
Leikkonan vildi gera íbúðina upp og fékk Kelly Wearstler, innanhúshönnuð með meiru, með sér í lið.
Kelly þykir einstaklega fær á sínu sviði og er mjög vinsæl Vestanhafs um þessar mundir.
Meðfylgjandi myndir sýna íbúð Cameron Diaz eftir að Kelly tók hana í gegn.
Borðstofan. Kelly paraði saman sterkbyggðu koparborði og armstólum. Speglaveggur veitir rýminu aukna vídd.
Eldhúsið. Óslípaður kopar þekur eldhúsvegginn sem og borðplötuna á innréttingunni. Dökklitaður viður á gólfi og retró loftljós.
Gengið úr borðstofu inn í eldhús. Takið eftir hvað flæði og samspil lita er flott. Grænn, svarblár og gulur.
Fallegt og dramatískt baðherbergi. Glerflísar á veggjum.
Stofan. Hér setti Kelly mikið af persónuleika Cameron í rýmið. Heimilislegt og ljúft umhverfi.
Svefnherbergið. Retro mohair stóll út í horni. Hvít og grá silkilök á rúmi og svört húsgöng til að skapa lúxus umhverfi.
[poll id=”76″]
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.