Við Hvammabraut í Hafnarfirðinum er þessi 66 fm íbúð til sölu, sem er kannski ekki í frásögur færandi…
…nema hvað að sjaldan eða aldrei hefur jafn mikil litagleði birst á sölusíðum fasteignamiðlara! Hér er líkt og fyrrum íbúi hafi hreinlega tapað sér í málningartrans þegar allir 66 fermetrarnir voru skreyttir með fjólubláu, grænu, bleiku, bláu, rauðu, svörtu og gulu… já næstum öllum litum rófsins.
Í auglýsingu á mbl.is segir að það þurfi að taka eignina í gegn (ha – er það?) og skipta um innréttingar og gólfefni en ef myndirnar eru vandlega skoðaðar má sjá að bæði baðkarið og eldavélin fengu líka meðferð málningarpenslanna.
…fyrst maður er byrjaður að mála – af hverju þá ekki að mála bara allt!?
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.