Þetta hús er með því fallegra sem ég hef séð, staðsett um 100 km frá Lima, höfuðborg Perú. Það er hannað í nútímastíl en sterkir litir og falleg lýsing einkenna fegurð þess.
Húsgögnin eru létt og ljós en eigendurnir nota mikið plasthúsgögnin frá Kartell sem hafa verið mjög vinsæl hér á landi. Innigarðurinn er einstaklega fallegur og fallega hannaður en þar er blómapottum raðað á ljósa púða. Verulega flott og góð hugmynd! Sundlaugin er meðfram húsinu og heildarmyndin er bara ein stór fegurð.
Njótið myndanna!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.