Þessi íbúð er algjörlega ótrúleg! Svo falleg og öðruvísi er hún…
Fólkið sem býr þarna á óneitanlega helling af peningum því húsgögnin, hönnunin og efnin sem þau nota eru svakaleg! Franskur nútímastíll, glamúr og glæsileiki alla leið. Loftin eru úrskorin með sérhannaðri lýsingu. Veggirnir nánast allir með rococo veggfóðri og gólfefnin hágæða parket. Þvílík fegurð!
Sófinn er Tuffy-Time sófinn frá B&B og vasarnir á sófaborðinu frá Moooi. Speglarnir heita Paris by Quodes og eru þeir heitustu á markaðnum í dag… ríka markaðnum því þeir kosta sitt þessar elskur, enda sjúklega flottir!
Glamúr alla leið!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.