Það er alltaf hlýlegt og fallegt að blanda saman gráum, brúnum og hvítum tónum
Svo ég tali nú ekki um dass af kertaljósum, gærum og púðum í stíl. Það gerir heimilið einstaklega hlýlegt og þægilegt þegar kaldir vindar berja á ísilagðar rúðurnar.
Þetta ofur fallega heimili er alveg í takt við komandi árstíð hjá okkur, kertin eru notuð sem aðalskrautið í stofunni enda bæði smart og þægileg.
Kertaluktir eru alltaf fallegar og þær eru til í svo mörgum tegundum, litum, stærðum og gerðum þessa dagana í nánast hvaða húsgagnaverslun sem er. Þessar falla vel inn í umhverfið sitt og príða heimilið með fegurð sinni og hlýleika.
Smart og hlýlegt heimili sem eiga einstaklega vel við árstímann sem framundan er.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.