Í París, höfuðborg Frakklands er þessa dásemdar íbúð að finna
Íbúðin er stútfull af glæsileika og glamúr en hér eru málverk, ljósmyndir og gullkranar svo á eitthvað sé upptalið. Gullkranarnir eru á baðherberginu ásamt gull speglum og sérsmíðuðum innréttingum.
Veggirnir í íbúðinni fá flottan sjarma með vegglistunum sem tóna auðvitað fullkomlega við rósetturnar í loftinu.
Gólfefnin í íbúðinni eru ekki af verra taginu heldur en þarna eru hágæða flísar í svörtu og hvítu, bæði á ganginum og á baðherberginu sem gefa heildinni sérstakan sjarma. Gömlum hlutum er blandað á listagóðan hátt við nýja hluti og íbúðin er líkari fallegu safni en heimili.
Heildarmyndin er bæði klassík, heillandi, sjarmerandi og rómantísk eins og frakkar eru hvað þekktastir fyrir.
Dásamlegur glamúr, – Chic*
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.