Louise Roe er danskur hönnuður sem hannar bæði föt og hluti fyrir heimilið.
Hún hefur mjög næmt auga fyrir einfaldleika og fegurð og hönnun hennar er módern og stílhrein. Mjög falleg hönnun. Louise hannar mikið af púðum fyrir heimilið og eins hlutum fyrir stofu og eldhús. Það er algjört augnakonfekt að kíkja á heimasíðuna hennar og fá hugmyndir en heimasíðan hennar er sneisafull af góðum hugmyndum og fallegri hönnun.
Danir eiga mikið af flottum hönnuðum en þessi er einn af þeim bestu!
Endilega kíktu á síðunna hennar líka hérna
<
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.