Þennan fallega bát er að finna í Svíþjóð (í augnablikinu)
Báturinn er innréttaður með lúxus í huga. Hús með mótor, fáránlega sniðug hugmynd fyrir fólk sem vill ekki vera á sama stað í of langan tíma. Lifa í margbreytilegu útsýni og hafa frelsi til að ferðast á snöggan og öruggan hátt.
Herbergin eru þrjú, baðherbergin tvö, falleg stofa, fullkomið eldhús með öllum þeim lúxus og þægindum sem nútíminn bíður upp á. Pallurinn er dásamlegur, falleg útihúsgögn, heitur pottur og bara næsheit.
Skemmtileg hugmynd fyrir þá sem vilja lifa lífinu á ferðinni!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.