Nei er ekki að skrifa ritdóm um kvikmyndina 50 shades of gray!
Því ég hreinlega nenni ekki að tjá mig um hana (væri efni í heila bók ef ég byrja að tjá mig um hana), enda nógu margir sem lofsyngja hana eða hreinlega þola hana ekki.
Ég ætla hinsvegar að bjóða þér upp á hrikalega flotta íbúð í ansi mörgum gráum tónum. Hérna sjáum við vel valda gráa tóna í bland við brúna, vel uppsetta og samsetta sem skapa dásamlega heild. Íbúðin er einnig stútfull af girnilegum listaverkum og þá helst keramik munum sem gefa íbúðinni enn einn sjarmann.
Algjör konfektmoli fyrir allan aurinn!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.